IcelandicEnglish

Álfhólar

Vorsabær

Krían Bar

Upphafssíða
Upphafssíða
Sölusýning 23. september PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 02 september 2010

Næsta sölusýning Hest.is og Hestafrétta verður haldin 23. September næstkomandi, sem er fimmtudagskvöld fyrir Laufskálarétt.

Eins og áður hefur tíðkast veður sýningin tekin upp og sýnd á Hestafréttum.

Einnig er stefnt að því að vera með sýninguna í beinni útsendingu á Hestafréttum.

Skráningargjald er 10.000 kr. og inní því verði er upptaka af hrossinu einu og sér ásamt kynningu á www.hest.is

Sölusýningin er þar af leiðandi kynningagluggi fyrir hrossið í tvo mánuði eftir sýningu, en í mörgum tilfellum selst hrossið í kjölfar sýningar en ekki á sýningunni sjálfri.

 

Sölusýningin verður nánast auglýst síðar.

 

 

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 02 september 2010 )
 
Seldir hestar standa sig vel PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 23 ágúst 2010


Mynd: www.hestafrettir.is 

Það getur verið skemmtilegt að fylgjast með hestum sem seldir hafa verið í gegnum vefinn í keppnum, en nokkrir þeirra skutu upp kollinum á síðasta Suðurlandsmóti.  Arnar Bjarki Sigurðarson og Vonandi frá Bakkakoti urðu Suðurlandsmeistarar í fimmgangi unglinga.  Vonandi kom í sölu til okkar síðastliðið haust og Arnar Bjarki búinn að vinna frábæra vinnu með þannan hest.  Kristall frá Múla var seldur í vor en hefur ekki komist til síns heima vegna útflutningsbanns, hann var í úrslitum í Slaktaumatölti.  Spyrna frá Vorsabæ var seld í gegnum vefinn fyrir nokkrum árum síðan, er búinn að standa sig frábærlega í keppnum og verið í úrslitum á landsmóti í barnaflokki, núna farin að keppa í fimmgangni og var þar í úrslitum með eiganda sinn Rakel sem keppir í unglingaflokk.  Kúreki frá Vorsabæ var seldur í gegnum vefinn í vetur og var mættur í úrslit í fimmgangi 1. flokk, með eiganda sinn Þorvarð Friðbjörnsson.  Og fyrir töluverð mörgum árum síðan seldi Jói Öðling frá Langholti, sem varð Suðurlandsmeistari í slaktaumatöli unglinga.

 

 
Salan að fara í gang aftur - vantar hross á söluskrá PDF Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 11 ágúst 2010

 Á síðustu vikum hefur salan tekið kipp eftir frekar rólega tíð.  Okkur vantar því góð hross á söluskrá og ef þú lumar á slíku þá eru nokkrar leiðir til boði til að koma hrossinu á framfæri.

Þú getur t.d. komið með hrossið til okkar og við prófum það, tökum myndir og myndband og annaðhvort setjum það á netið eða eigum gögnin til, ef fólk er að leita af slíku hrossi.  Þessi leið er þér að kostnaðarlausu ef hrossið selst ekki, og ef hrossið selst eru greidd umboðslaun.

Ef þú ert með nokkur hross heima sem eru áhugaverð, er möguleiki á að við kíkjum í heimsókn og tökum hrossin upp á myndband og skoðum.  Hafðu bara samband!

Ef öll gögn eru til um hrossið, myndband og myndir og ef um reiðhross er að ræða að það sé í þjálfun og unnt að skoða, þá eru tvær leiðir í boði, fyrri leiðin þér að kostnaðarlausu en sölulaun ef hrossið selst, eða að greiða 10.000 kr. til að setja hestinn hér á síðuna, það er endanlegur kostnaður og þú annast sjálfur fyrirspurnir og gengur frá væntanlegri sölu.

Hafið því samband á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það ef þið viljið koma söluhrossi á framfæri.

 

Tilviljanakennt var myndavélin á lofti í kringum Verslunarmannahelgina og eitthvað af myndum til.  Ég mun setja hér inn eftir hendinni brot af þeim bestu og einnig lista yfir þau hross sem ég á mynd af ef einhver rekst á nafn á sínu hrossi.  Á forsíðumyndinni er efsta hryssan í 4. vetra flokki.  Gæðingurinn Lísa frá Hrafnkelsstöðum, undan Orra frá Þúfu og 1. verðlauna Kolfinnsdótturinni Þrá frá Kópareykjum.

A.t.h. að allar myndirnar eru birtar á Facebook síðu Hest.is

 
Myndir frá Verslunarmannahelgi PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 02 ágúst 2010

 

 

Tilviljanakennt var myndavélin á lofti í kringum Verslunarmannahelgina og eitthvað af myndum til.  Ég mun setja hér inn eftir hendinni brot af þeim bestu og einnig lista yfir þau hross sem ég á mynd af ef einhver rekst á nafn á sínu hrossi.  Á forsíðumyndinni er efsta hryssan í 4. vetra flokki.  Gæðingurinn Lísa frá Hrafnkelsstöðum, undan Orra frá Þúfu og 1. verðlauna Kolfinnsdótturinni Þrá frá Kópareykjum.

A.t.h. að allar myndirnar eru birtar á Facebook síðu Hest.is

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 11 ágúst 2010 )
Lesa meira...
 
SaleShow - Second Part PDF Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 25 júlí 2010


Síðast uppfært ( sunnudagur, 25 júlí 2010 )
 
Feðgin að leik PDF Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 25 júlí 2010

Það er ekki oft sem maður sér feðgin að leik í hrossahóp.  En við vorum það ánægð með folaldið undan henni Bliku Óðsdóttir og Háfeta Hágangssyni að við héldum þeim saman aftur.  Það voru fagnaðarfundir og þau feðgin tóku á sprett saman og hlupu um hólfið full að aðdáun hvort til annars. 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 10 af 228

Who's Online

Það eru 3 gestir tengdir