|
fimmtudagur, 26 febrúar 2009 |
|
.jpg)
Avaldi er stóðhestur á fjórða vetur sem seldist í gegnum hest.is snemma í haust. Kaupandinn er dönsk kona að nafni Henriette. Avaldi kom í frumtamningu núna í febrúar og er orðinn reiðfær, hann er léttbyggður og hreyfingarfallegur foli með einstaklega ljúft geðslag. Að flestum líkindum mun Avaldi dveljast á Íslandi fram á næsta haust en stefnan er tekin á byggingadóm í vor og fullnaðardóm í Danmörku vorið 2010. Avaldi er einn af fyrstu afkvæmum stóðhestsins Tjörva frá Sunnuhvoli sem er tamið, en Tjörvi er einmitt farinn til Danmerkur. Tjörvi vakti mikla athygli strax 4. vetra þegar hann hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt og 9,5 fyrir fegurð í reið fimm vetra gamall. Móvindótta litinn fær Avaldi frá Álfhólum, en móðir hans er undan einni af uppáhaldshryssunum þar, Mónu frá Álfhólum. |
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 26 febrúar 2009 )
|
|
|
þriðjudagur, 17 febrúar 2009 |
|
.JPG)
Í sumar verður boðið uppá hestaferðir á vegum Borgar og Skíðbakka 3. Ferðirnar verða sérsniðnar óskum hvers og eins. Aðlagaðar smærri sem stærri hópum og blandað saman ýmsum afþreyingum, eins og t.d. heimsóknir á ræktunarbú. Meira um það síðar en hægt er að fá allar upplýsingar á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
.
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 17 febrúar 2009 )
|
|
|
mánudagur, 16 febrúar 2009 |
|

Það alskemmtilegasta við að standa í sölu á hrossum er að fá fréttir af þeim á nýjum heimkynnum. Ný streyma inn góðar fréttir af þeim hrossum sem fóru út í haust og vetur og allir í skýjunum með góð kaup. Það er ekki sjálfgefið að hrossin aðlagist vel nýjum heimkynnum, nýju fóðri, umhverfi og nýjum knapa. Hérna má sjá hryssuna Björt frá Hábæ sem fór utan í haust. Hún hafði verið notuð í keppnum hér heima í barnaflokki áður en hún hélt til Þýskalands. Björt er undan Þráinn frá Sigtúni sem nú er staðsettur í Danmörku. Þráinn og Björt að sjálfsögðu ættuð úr Þykkvabænum... en ekki hvað! |
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 16 febrúar 2009 )
|
|
|
þriðjudagur, 10 febrúar 2009 |
|
Þetta er Stæll frá Neðra-Seli í vetrarþjálfun. Stæll er 4. vetra sonur Stála frá Kjarri. Á þessu stutta vídeói er folinn ungi járnaður eðlilega með engar hlífar. Stæll er alhliða hestur með verulega efnilegt skeið sem verður þó að bíða frekari þjálfunar. Stæll verður væntanlega í húsnotkun hjá okkur í Borg. |
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 10 febrúar 2009 )
|
|
|
miðvikudagur, 04 febrúar 2009 |
|

Icelandic´s biggest tournament is starting on thursday and for that occasion there was a press conference on the icy pond "Reykjavíkurtjörn" in center of Reykjavík. Beautiful horses and riders of Meistaradeild VÍS were there on a cold and beautiful day. But when they were ending their show with a sort of parade the ice was too week... watch the dramatic pictures when the horses fall into the water and are rescued by curageous people, for example the owner of the web www.hestafrettir.is Fjölnir Þorgeirsson.
http://www.hestafrettir.is/veftv.asp?CategoryID=30&MovieID=611

Just for information the horse on the top, when everything was running smoothly is the stallion Hugleikur frá Fossi and Jói G. Hugleikur was sold through www.hest.is last winter.
|
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 04 febrúar 2009 )
|
|
|
föstudagur, 30 janúar 2009 |
|
.jpg)
Það er ótrúlegt hvað "litlir" hlutir í náttúrunni geta skotið sér upp á ólíklegustu augnablikum. Skil t.d. ekki hverjum datt í hug að planta ljósastaur í miðjan skeiðsprett! En það er mikil traffík í hesthúsinu þessa dagana, góð sala í janúar og hestar ýmist að koma eða fara. Þjálfunarhrossin eru óðum að komast í flott form og það er ekkert slor að ríða góðum gæðingi í þessu færi sem hefur verið síðustu daga. |
|
Síðast uppfært ( föstudagur, 30 janúar 2009 )
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 221 - 230 af 288 |