|
fimmtudagur, 09 júní 2011 |
|

Við vorum á ferðinni á Árbakka í vikunni og sáum þar athygliverðan fola, Framherja frá Flagbjarnarholti. Framherji er einungis 4. vetra, verulega hreyfingarmikill og mjúkur í senn. Hann er einnig fallegur, með 8,36 fyrir sköpulag og þar af 9 fyrir fótagerð. Framherji verður ekki sýndir fyrir hæfileika í sumar, heldur fær hann að styrkjast meira og kemur því sterkur inn á næsta ári þegar Landsmót verður haldið í Reykjavík. Framherji er á leið í hryssur og fá víst færri pláss en vildu. Eigandi og ræktandi Framherja er Sveinbjörn Bragason, en Framherji er undan 1. verðlauna Orradóttir, glæsitölthryssunni Surtsey frá Feti sem Sveinbjörn keppti á með frábærum árangri. Faðirinn er Hágangur frá Narfastöðum, undan Glampa og Orradóttur.
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 09 júní 2011 )
|
|
|
laugardagur, 04 júní 2011 |
|
.jpg)
Brestur frá Lýtingsstöðum tekur á móti hryssum heima á Borg í sumar. Brestur var sýndur í síðustu viku og hlaut 8,18 fyrir byggingu og 8,31 fyrir hæfileika. Aðaleinkunn 8,26. Brestur er undan Illingi frá Tóftum og Blíðu frá Skíðbakka 3, sem er undan Jarli frá Búðardal, Kolfinnssyni frá Kjarnholtum. Það er því engin Orri í Bresti en það gæti passað vel að halda undir hann hryssum tengdum Orra. Brestur er virkilega fínlega byggður, með grannan háls, léttbyggður og fótahár með sterkar fætur. Brestur er alhliða hestur með sterk gangskil og frábært fet. Mjúkur og hreingengur á tölti, brokkið svifmikið og skeiðið hreint. Brestur er fasmikill gæðingur, hlaut í sinni fyrstu keppni 6,55 í fimmgangi og 8,48 í A-flokki.
Upplýsingar á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða í síma 822-2223 (Jói) eða 863-8813 (Elka)
Brestur tekur á móti hryssum heima á Borg í sumar, verð á folatolli er 50.000 kr. með vsk. Frekari upplýsingar hér! |
|
Síðast uppfært ( laugardagur, 04 júní 2011 )
|
|
|
mánudagur, 30 maí 2011 |
|

Ég á það til að þvælast með myndavélina með mér á ýmsa staði. Ég tók nokkrar myndir á kynbótasýningu í Hafnarfirði og munu einhverjar fleiri bætast hérna við fljótlega. Myndirnar eru algjörlega handahófskenndar en ég læt fylgja með upplýsingar um hestana sem um ræðir. Ég vona að þið hafið gaman af og vinsamlegast ekki "STELA" myndum, sendið frekar póst og fáið þær lánaðar eða kaupið á vægu verði :-)
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
Lesa meira...
|
|
|
föstudagur, 27 maí 2011 |
|
Svipmyndir úr forkeppni í tölti á Íþróttamót Geysis þar sem m.a. Mídas frá Kaldbak fór í 8,27 í forkeppni og í 8,89 í úrslitum.
|
|
Síðast uppfært ( föstudagur, 27 maí 2011 )
|
|
|
miðvikudagur, 25 maí 2011 |
|

Like most of you have heard... a Volcano Erruption was in Iceland again, about 1 year after the last one. It seems like nature have some need of showing it self here in this land of Fire and Ice. This erruption was however a lot easier than the last one, it was more powerful, but lasted a lot shorted and for us living in the south of Iceland, it was not as close to us. When clicking the image you can expirience the live closer to the volcano, and the suffering of both people and animals. Take at look.
|
|
|
laugardagur, 14 maí 2011 |
|
Upplýsingar um stóðhestana undir "lesa meira"
|
|
Síðast uppfært ( laugardagur, 14 maí 2011 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 31 - 40 af 288 |