|
miðvikudagur, 27 apríl 2011 |
|
|
|
|
miðvikudagur, 27 apríl 2011 |
|
|
|
|
fimmtudagur, 21 apríl 2011 |
|
.JPG)
Það er komið vor í Evrópu og kynbótasýningar hafnar á mörgum stöðum. Við fengum senda þessa mynd af stóðhestinum Njál frá Vestri-Leirárgörðum sem seldur var til Þýskalands síðastliðið haust. Njáll er undan gæðingnum Glym frá Innri-Skeljabrekku og Emblu frá Vestri-Leirárgörðum. Þau Elke og Gerd eru hæstánægð með klárinn en stefnt er með hann í kynbótadóm í vor. Það verður gaman að sjá hvað þessi ljúflingur gerir þar, en Þórður Þorgeirsson verður knapi.
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 21 apríl 2011 )
|
|
|
fimmtudagur, 31 mars 2011 |
|
.jpg)
Á þessum tíma árs er oft minni sala á reiðhestum en á sumrin og haustin. En þess í stað er mikil eftirspurn eftir ræktunarhryssum á öllum aldri. Í fyrra kölluðum við eftir upplýsingum um hryssur til sölu sem hægt væri að halda undir stóðhesta í sumar og gerum það sama nú. Vinsælastar eru 3-4 vetra gamlar hryssur með eftirsóttan lit eða ættir sem erlendir aðilar geta keypt, farið með undir stóðhest og flutt út seinna í sumar eða í haust. Einnig eldri hryssur af öllum toga, eftirsóttar ættir og einkunnir, jafnvel fylfullar við góðum hestum. Endilega hafið samband á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
, það kostar ekkert að koma þeim á framfæri! |
|
|
fimmtudagur, 24 mars 2011 |
|
.jpg)
Með því að smella á lesa meira má sjá nokkrar myndir frá Ísmóti Suðurlands.
|
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 24 mars 2011 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
sunnudagur, 13 mars 2011 |
|

Með þriggja daga fyrirvara var ákveðið að halda Ísmót á Gljánni í Þykkvabæ. Allir lögðust á eitt til að búa til flott mót með svo skömmum undirbúningi. Þetta tókst mjög vel upp, með frábært veður að vopni og fjallahringinn eins fagran og hann getur verið, tókst að halda glæsilegt mót í fallegri umgjörð. Eins og þeir sáu sem mættu er Gljáin frábært svæði til að halda slíkan viðburð, ísinn er ekki djúpur, en eins langur og augað eygir. Myndir af mótinu birtast á facebook síðu Hest.is og myndbönd birtast hér á síðunni þegar búið er að klippa og hlaða uppá netið, en mótið var einungis tekið uppá vasamyndavél.
Með dyggum styrkjum frá sveitungum náðust að safna glæsilegum verðlaunum og skipta verðmæti þeirra mörgum hundruðum þúsundum. Folatollar, bretti af spónarböllum Spónarvinnslunni, glæsileg verðlaun frá Fóðurblöndunni, Þykkvabæjar, Sláturhúsinu á hellu, humar frá Auðbjörgu í Þorlákshöfn og svo má lengi telja. Við þökkum góðan dag og frábærar sýningar.
Með því að smella á "lesa meira" má sjá úrslit og myndbönd.
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 15 mars 2011 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 41 - 50 af 288 |