IcelandicEnglish

2010 - Calendar

Álfhólar

Krían Bar

Upphafssíða
Upphafssíða
Ný skoðanakönnun PDF Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 26 janúar 2011

Nú höfum við skipt um skoðanakönnun hérna á vefnum og biðjum Íslendinga vinsamlegast um að taka þátt í þetta skipti. Síðastu spurningu var beint til Útlendinga en þeir voru spurðir hvort þeir hyggðust heimsækja Ísland árið 2011. Rúm 43% þeirra sem tóku þátt ætla 100% að koma til Íslands og 27% í viðbót telja það líklegt. Þannig að það má búast við að Íslandshestavinir verði á ferðinni á þessu ári sem er gott.

En í kjölfar síðustu Sölusýningar langar okkur að fá ykkar vísbendingar um hvenær sé þörf á næstu sýningu. Síðasta vetur var þátttaka á tveimur sýningum sem haldnar voru um miðjan vetur og þegar leið að vori frekar dræm. Sýningarnar hafa hins vegar alltaf notið mikils áhorfs og myndböndin af hrossunum mikið skoðuð á vefnum. Okkur þykja þessar sýningar mjög þarfar og þá sérstaklega þegar litið er til erlendra kaupenda sem fá þarna vísbendingu um það sem í boði er. En sýningarnar eru auðvitað háðar því að við getum sýnt fólkinu úrval af góðum hrossum. Svo vinsamlegast segið ykkar skoðun!

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 25 janúar 2011 )
 
Sölusýning 21. jan. 2010 PDF Prenta Rafpóstur
laugardagur, 22 janúar 2011

Sölusýningin tókst að vanda vel og margt prýðilegra hrossa kom þar fram.  Myndband og upplýsingar um hrossin munu tínast hér inná síðuna á næstu dögum.

 
Ráslisti á Sölusýningu PDF Prenta Rafpóstur
föstudagur, 21 janúar 2011

Sýningin hefst kl. 19.30

Lesa meira...
 
Sölusýning 21. janúar næstkomandi PDF Prenta Rafpóstur
þriðjudagur, 11 janúar 2011

Haldin fyrir erlenda kaupendur!


 

 

 

 

Föstudaginn 21. Janúar næstkomandi verður haldin Sölusýning á Ingólfshvoli kl. 19.30.  Sýningin er haldin af www.hest.is, Hestafréttum og Takthestum á Ingólfshvoli.  Þessi sýning hefur fest sig verulega í sessi, og hafa erlendir aðilar sýnt henni mikinn áhuga og bíða hennar með eftirvæntingu.    Við viljum þar af leiðandi hvetja fólk sem hefur áhugaverð hross til sölu að mæta með þau, í því skyni hefur skráningargjald verið lækkað um 25% eða í 7.500 kr. pr. Hest.  Skráningin inniheldur myndband sem tekið er upp á síðunni og er sýnilegt á Hestafréttum og Hest.is.  Hrossið er þar að auki sýnilegt á hest.is í tvo mánuði.

....lesa meira......

 

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 11 janúar 2011 )
Lesa meira...
 
Þeyr frá Prestsbæ PDF Prenta Rafpóstur
laugardagur, 08 janúar 2011

IS2004101166 – Jarpur
Til notkunar á Norðurlandi 2011

F: Aron frá Strandarhöfði (Aðaleinkunn: 8,54)

M: Þoka frá Hólum (Aðaleinkunn: 8,64)

Bygging: 8,23 Hæfileikar: 8,55
Aðaleinkunn: 8,42
BLUB: 126

Síðast uppfært ( laugardagur, 08 janúar 2011 )
Lesa meira...
 
Með bjartsýni að leiðarljósi PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 03 janúar 2011

Nú hefur árið 2011 tekið við og ekki annað hægt að vera bjartýn.  Við hestamenn fengum heldur betur að kenna á því á síðasta ári og því auðveldlega hægt að segja að það geti varla versnað!!!  En árgangarnir hafa vaxið upp og eru nú margar vonarstjörnurnar sem bíða eftir að láta ljós sitt skína.  Það er spennandi ár framundan með tveimur stórmótum í sumar.  Við höfum sett okkar markmið og erum stolt og sátt við hversu vel hest.is hefur tekist að tengja kaupendur við seljendur.  Mikill fjöldi hrossa hafa selst á árinu með hjálp vefsins og við höfum aukið við kynningu í haust og fram á nýtt ár.  Hver sala býr til ánægjuleg tengsl og við erum þakklát hversu vel hefur gengið.  Vefurinn er hugsaður sem hjálpartæki fyrir alla sem geta nýtt sér hann og við hvetjum ykkur öll, sem hafið áhuga á að kynna ykkar þjónustu, eða söluhross í gegnum vefinn að hafa samband og nýta þar af leiðandi þau tengsl sem bjóðast.

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 51 - 60 af 288

Who's Online

Það eru 34 gestir tengdir