IcelandicEnglish

2010 - Calendar

Álfhólar

Krían Bar

Upphafssíða
Upphafssíða
Folöld sem verða til á Íslandi PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 11 nóvember 2010

Það er mjög algeng að keyptar séu hryssur á Íslandi, ýmist fylfullar eða þeim haldið undir stóðhesta áður en þær eru fluttar úr landi.  Það getur síðan verið mjög skemmtilegt að fylgjast með afkvæmunum sem koma í heiminn sumarið eftir.  Ég tók saman myndir af sex folöldum sem komu í sumar, fimm þeirra fæddust erlendis en eitt fæddist á Íslandi þar sem hryssan fer aftur undir stóðhest næsta sumar.

Efsta folaldið er moldóttur hestur undan Asa frá Lundum og Vigdísi frá Brú, þau eru í Þýskalandi.  Við hliðina er hryssa undan Stormi frá Leirulæk og Gæfu frá Lækjardal sem staðsett er í Noregi.  Ljósmoldótta folaldið í miðið er hryssa undan Þyt frá Neðra-Seli og Föl frá Hrafnkelsstöðum.  Þar við hlið er folald undan Asa frá Lundum og Syrpu frá Laugardal sem er í Danmörku.  Neðst til vinstri er merfolald undan Vídalín frá Hamrahóli og Gróttu frá Ey en þau eru í Svíþjóð og svarta hestfolaldið er undan Héðni frá Feti og Rökkvu frá Hliðsnesi er einnig í Svíþjóð.  Líklega verður hann og rauða hestfolaldið í miðið bæði gráir með tímanum.

 
Sölusýningin tókst vel PDF Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 07 nóvember 2010

Sölusýningin tókst vel á föstudagkvöldið.  20 hross voru sýnd en mikil hálka sem myndaðist skyndilega í frostrigningu fyrir austan selfoss gerði sumum sýnendum grikk.  Öll hross eru komin inná vefinn en beðið er eftir að myndböndin séu tilbúin.

Næsta sýning er áætluð í lok janúar 2011.

 

 

Síðast uppfært ( sunnudagur, 07 nóvember 2010 )
 
Ráslisti fyrir Sölusýningu PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 04 nóvember 2010

Með því að fara í "lesa meira" er hægt að nálgast ráslistann fyrir sölusýninguna

sem hefst á morgun, föstudag kl. 19.00 í Ölfushöll Ingólfshvoli.

Frábært tækifæri fyrir fólk að hittast í góðum félagsskap manna og hrossa.

Frítt inn - Veitingasalan opin - Allir velkomnir.

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 04 nóvember 2010 )
Lesa meira...
 
Hest.is er á Facebook PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 25 október 2010

Hægt er að fylgjast með nýjungum á síðunni inná Facebook en þar reynum við að láta vita þegar nýir hestar koma á sölulista og þegar eitthvað sniðugt er að frétta. 

Síðan heitir einfaldlega HEST.IS / Horses for sale. 

 
Saleshow 5. november 2010 PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 11 október 2010

 
Glatt á hjalla í Fróðholti PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 04 október 2010

Dagurinn tókst mjög vel upp á Ársæli og Önnu Fíu í Eystra-Fróðholti. Dagskráin hófst með sýningu á nokkrum frábærum hrossum úr þeirra ræktun. Nokkur hross voru fundin til, gömul sem ný og flest þeirra ekki í mikilli þjálfun. Óðinn og Glíma komu þar fram ásamt yngri hrossum. Mikla athygli vakti hryssan Spá, 4 vetra gömul undan Sæ og Glettu frá Bakkakoti en sýnandi var eigandinn, Ragnheiður Hrund Ársælsdóttir. Að mati áhorfenda voru hrossin frábær og tókst sýningin vel, var passlega frjálsleg að þeirra sið. Að þessu loknu gat fólk rölt sér um stóðið og gætt sér að frábærri súpu þess á milli. Á myndbandinu eru smá svipmyndir úr hólfinu þar sem unghrossin fengu athyglina.

 

Síðast uppfært ( mánudagur, 04 október 2010 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 61 - 70 af 288

Who's Online

Það eru 36 gestir tengdir