|
miðvikudagur, 11 ágúst 2010 |
|
Á síðustu vikum hefur salan tekið kipp eftir frekar rólega tíð. Okkur vantar því góð hross á söluskrá og ef þú lumar á slíku þá eru nokkrar leiðir til boði til að koma hrossinu á framfæri.
Þú getur t.d. komið með hrossið til okkar og við prófum það, tökum myndir og myndband og annaðhvort setjum það á netið eða eigum gögnin til, ef fólk er að leita af slíku hrossi. Þessi leið er þér að kostnaðarlausu ef hrossið selst ekki, og ef hrossið selst eru greidd umboðslaun.
Ef þú ert með nokkur hross heima sem eru áhugaverð, er möguleiki á að við kíkjum í heimsókn og tökum hrossin upp á myndband og skoðum. Hafðu bara samband!
Ef öll gögn eru til um hrossið, myndband og myndir og ef um reiðhross er að ræða að það sé í þjálfun og unnt að skoða, þá eru tvær leiðir í boði, fyrri leiðin þér að kostnaðarlausu en sölulaun ef hrossið selst, eða að greiða 10.000 kr. til að setja hestinn hér á síðuna, það er endanlegur kostnaður og þú annast sjálfur fyrirspurnir og gengur frá væntanlegri sölu.
Hafið því samband á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
ef þið viljið koma söluhrossi á framfæri.
Tilviljanakennt var myndavélin á lofti í kringum Verslunarmannahelgina og eitthvað af myndum til. Ég mun setja hér inn eftir hendinni brot af þeim bestu og einnig lista yfir þau hross sem ég á mynd af ef einhver rekst á nafn á sínu hrossi. Á forsíðumyndinni er efsta hryssan í 4. vetra flokki. Gæðingurinn Lísa frá Hrafnkelsstöðum, undan Orra frá Þúfu og 1. verðlauna Kolfinnsdótturinni Þrá frá Kópareykjum.
A.t.h. að allar myndirnar eru birtar á Facebook síðu Hest.is
|
|
|
mánudagur, 02 ágúst 2010 |
|
.jpg)
Tilviljanakennt var myndavélin á lofti í kringum Verslunarmannahelgina og eitthvað af myndum til. Ég mun setja hér inn eftir hendinni brot af þeim bestu og einnig lista yfir þau hross sem ég á mynd af ef einhver rekst á nafn á sínu hrossi. Á forsíðumyndinni er efsta hryssan í 4. vetra flokki. Gæðingurinn Lísa frá Hrafnkelsstöðum, undan Orra frá Þúfu og 1. verðlauna Kolfinnsdótturinni Þrá frá Kópareykjum.
A.t.h. að allar myndirnar eru birtar á Facebook síðu Hest.is |
|
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 11 ágúst 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
sunnudagur, 25 júlí 2010 |
|
|
|
Síðast uppfært ( sunnudagur, 25 júlí 2010 )
|
|
|
sunnudagur, 25 júlí 2010 |
|
.jpg)
Það er ekki oft sem maður sér feðgin að leik í hrossahóp. En við vorum það ánægð með folaldið undan henni Bliku Óðsdóttir og Háfeta Hágangssyni að við héldum þeim saman aftur. Það voru fagnaðarfundir og þau feðgin tóku á sprett saman og hlupu um hólfið full að aðdáun hvort til annars. |
|
|
sunnudagur, 18 júlí 2010 |
|

Við fengum til okkar hóp af frábæru fólki sem lagði leið sína til Íslands til að fara í Hestaferð. En þegar hrossin eru að skríða útúr veikindum var ekki mögulegt að leggja á þau margra klukkustunda ferðalag og því þurfti að breyta ferðinni örlítið. Reiðtúrarnir voru stuttir og bíltúrarnir lengri. Það kom þó ekki að sök enda margt að skoða í frábæru veðri og hópurinn fór glaðbeyttur heim eftir að hafa heimsótt meðal annars svæðið umhverfis Eyjafjallajökul, Gullfoss og Geysi, Vestmannaeyjar, Hvalfjörðinn og auðvitað Reykjavík.
.jpg) |
|
|
þriðjudagur, 06 júlí 2010 |
|
The first horses are already presented here on the site but on this video you can see them all at once.
|
|
Síðast uppfært ( þriðjudagur, 06 júlí 2010 )
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 71 - 80 af 288 |