IcelandicEnglish

2010 - Calendar

Álfhólar

Krían Bar

Upphafssíða
Upphafssíða
39 breedingmares on the list! PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 10 júní 2010

Interested in Breeding?

We have 39 mares at the moment for sale and ready to be taken to one of Iceland´s favorite stallion.

Send e-mail to Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það if you are interested in either breeding in Iceland, or take a good, pregnant mare to your home in the fall.

Síðast uppfært ( mánudagur, 14 júní 2010 )
 
Iceland is not that bad..:!!! PDF Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 02 júní 2010

 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 02 júní 2010 )
 
Sölusýning færð framar PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 31 maí 2010

Í ljósi þess að Landsmóti Hestamanna hefur verið frestað, hefur verið ákveðið að færa sölusýningu sem halda átti vikuna eftir Landsmót, fram á helgina á undan, eða 3-4 júlí 2010.  Bryddað verður uppá nýjungum á þessari sýningu þar sem hægt verður að mæta með tryppi og folöld sem rekin verða til í höllinni, auk þess sem tamin hross verða sýnd ýmist á vellinum ef veður leifir, eða inní reiðhöll. 

Einnig er áhugi á að halda lítið mót fyrir þau hross sem eru heilbrigð af pestinni en það verður ákveðið síðar.

Frekari upplýsingar um sýninguna koma á næstu dögum.

 
Fylfullu hryssurnar hressar PDF Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 30 maí 2010

Þrátt fyrir hestapestina er ekki hægt að sjá mikinn slappleika í folaldshryssunum sem hlaupa um bakkana ungar í anda!  Óðsdóttirin Blika frá Bakkakoti á ekki von á sér fyrr en seint í sumar og lét sér ekki muna um að taka sprettinn ásamt reyndar flestum öðrum hryssum, sem var kannski helst hægt að líkja við hóp af beljum sem hleypt er út á vorin þrátt fyrir að hafa haft bakkana í c.a. mánuð útaf fyrir sig.  En vorið er skemmtilegasti tíminn og það er sérkennilegt að hafa varla farið í reiðbuxur í heilan mánuð þegar maður er vanur að vera að spyrna úr hófum á þessum tíma.

Síðast uppfært ( sunnudagur, 30 maí 2010 )
 
Fyrsta folaldið komið á Borg PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 27 maí 2010

Þá er fyrsta folaldið fætt á Borg en það var hún Föl frá Hrafnkelsstöðum sem kastaði fyrst, moldóttri hryssu undan Þyt frá Neðra-Seli.  Föl er í eigu Janne Teksle í Noregi, en Föl er undan 1. verðlauna hestinum Hæring frá Litla-Kambi og er einungis 4 vetra gömul.

 
Sala á hryssum undir stóðhesta! PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 17 maí 2010

Á þessum árstíma er sala til útlanda ekki mjög mikil, en þó helst í ungum hryssum sem fólk hefur áhuga á að halda undir topp stóðhesta í sumar og flytja erlendis í haust.

Við erum að útbúa okkur lista yfir hryssur til að geta boðið áhugasömum kaupendum uppá sem mest úrval, svo endilega sendið okkur upplýsingar um hryssur til sölu með myndum og verði á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Mest eftirspurn er eftir annars vegar litfögrum hryssum, og hins vegar eftir vel ættuðum hryssum.

 

 

Síðast uppfært ( mánudagur, 17 maí 2010 )
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 81 - 90 af 288

Who's Online

Það eru 35 gestir tengdir