IcelandicEnglish

2010 - Calendar

Álfhólar

Krían Bar

Login Form






Týnt lykilorð?
Ekki með aðgang? Búðu til einn
Upphafssíða arrow Upplýsingar
Upplýsingar PDF Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 09 janúar 2008



Þessi síða er ætluð sem miðlægur gagnagrunnur um þau hross sem eru til sölu á hverjum tíma. Öllum er heimilt að setja hross inná síðuna en til þess að það sé mögulegt þarf að taka góðar myndir af hestunum og þeim lýst eins vel og mögulegt er hverju sinni. Markmið vefsins er að auka aðgengi erlendra- sem innlendra aðila að þeim hrossum sem eru til sölu á hverjum tíma. Síðan er auglýst á erlendum sem íslenskum vefmiðlum og öðrum vettvangi eins og kostur er á. Mögulegt er að setja myndband á vefinn. Miðað er við að söluhross sé á síðunni í tvo mánuði.

Verðskrá.

Ekkert kostar að auglýsa á vefnum en 10% sölulaun þegar hrossið selst. Ef um fleiri hross er að ræða á hverjum stað er sjálfsagt að hafa samband uppá myndatöku.
Ef hrossið selst á því tveggja mánaða tímabili sem það er inná síðunni, en salan er ekki í gegnum vefinn, þá greiðist 10 þús fyrir auglýsinguna.


Innsetning efnis og þýðing á ensku fyrir einn hest:
(Seljandi skaffar sjálfur góðar myndir af tilteknu hrossi og myndband óski hann þess).
10.000 kr. + v.s.k. fyrir hrossið í tvo mánuði
Þessi leið er farin fyrir ódýrari hross (10% reglan er ekki möguleg fyrir hross sem kosta undir 500 þús.)


Ef ekki eru til myndir eða myndbönd er hægt að hafa samband til að fá aðstoð við það.

Banner á forsíðu.
15.000 kr. + v.s.k. fyrir banner á forsíðu í tvo mánuði (10 þús fyrir mánuð þrjú og fjögur o.s.frv.)

25.000 kr. + vsk fyrir banner á forsíðu í 6 mánuði.

Linkar.
Ókeypis er að setja link á linkasafn síðunnar.
Sendið upplýsingar á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Það ber að geta þess að uppgefin verð á hestum eru án vsk. Ástæða þessa eru að mörg hrossanna eru í eigu einstaklinga sem ekki eru með vsk skyldan rekstur. Einnig er útflutningur undanþegin vsk og þar af leiðandi þurfa erlendir kaupendur ekki að borga vsk af kaupverði fyrr en hrossin koma í þeirra heimaland. Af þessum orsökum eru verðin látin standa án vsk nema annað komi fram.

Vonandi á síðan eftir að verða ykkur að gagni.
Allar upplýsingar fást í gegnun netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 8638813

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 17 janúar 2012 )