IcelandicEnglish

2010 - Calendar

Álfhólar

Krían Bar

Upphafssíða
Salan að fara í gang aftur - vantar hross á söluskrá PDF Prenta Rafpóstur
miðvikudagur, 11 ágúst 2010

 Á síðustu vikum hefur salan tekið kipp eftir frekar rólega tíð.  Okkur vantar því góð hross á söluskrá og ef þú lumar á slíku þá eru nokkrar leiðir til boði til að koma hrossinu á framfæri.

Þú getur t.d. komið með hrossið til okkar og við prófum það, tökum myndir og myndband og annaðhvort setjum það á netið eða eigum gögnin til, ef fólk er að leita af slíku hrossi.  Þessi leið er þér að kostnaðarlausu ef hrossið selst ekki, og ef hrossið selst eru greidd umboðslaun.

Ef þú ert með nokkur hross heima sem eru áhugaverð, er möguleiki á að við kíkjum í heimsókn og tökum hrossin upp á myndband og skoðum.  Hafðu bara samband!

Ef öll gögn eru til um hrossið, myndband og myndir og ef um reiðhross er að ræða að það sé í þjálfun og unnt að skoða, þá eru tvær leiðir í boði, fyrri leiðin þér að kostnaðarlausu en sölulaun ef hrossið selst, eða að greiða 10.000 kr. til að setja hestinn hér á síðuna, það er endanlegur kostnaður og þú annast sjálfur fyrirspurnir og gengur frá væntanlegri sölu.

Hafið því samband á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það ef þið viljið koma söluhrossi á framfæri.

 

Tilviljanakennt var myndavélin á lofti í kringum Verslunarmannahelgina og eitthvað af myndum til.  Ég mun setja hér inn eftir hendinni brot af þeim bestu og einnig lista yfir þau hross sem ég á mynd af ef einhver rekst á nafn á sínu hrossi.  Á forsíðumyndinni er efsta hryssan í 4. vetra flokki.  Gæðingurinn Lísa frá Hrafnkelsstöðum, undan Orra frá Þúfu og 1. verðlauna Kolfinnsdótturinni Þrá frá Kópareykjum.

A.t.h. að allar myndirnar eru birtar á Facebook síðu Hest.is

 
< Fyrri   Næsti >

Who's Online

Það eru 7 gestir tengdir